Skráning í fermingar í Breiðholtskirkju og Fella-og Hólakirkju vorið 2023

Hér geta foreldrar og forráðamenn skráð fermingarbörn vorið 2023.


Fermingarbarn

Nafn *
Kennitala *
Heimili *
Staður *
Farsími
Er fermingarbarnið skírt? *


Skírnardagur
Vinsamlega skráið inn skírnardag ef fermingarbarnið er skírt.
Grunnskóli *




Forráðamaður 1

Rafræn krafa fyrir fermingargjöldum er send í heimabanka forráðamanns 1.
Nafn *
Kennitala *
Farsími *
Netfang *
Netfang (aftur)

Forráðamaður 2

Nafn
Farsími
Netfang
Netfang (aftur)

Fermingardagur

Fermingardagur *
Vinsamlega veljið fermingardag og kirkju.

Fermingarfræðsla

Fermingarfræðsla *
Vinsamlega veljið hvort fermingarbarnið mætir í fermingarfræðslu í Breiðholtskirkju eða Fella- og Hólakirkju.

Annað

Aðrar upplýsingar

Meðferð persónuupplýsinga

Breiðholtskirkja og Fella- og Hólakirkja starfa á grundvelli laga um stöðu, stjórn og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, annarra skyldra laga, reglugerða og starfsreglna Kirkjuþings sem eiga sér stoð í lögum. Þegar um ræðir vinnslu persónuupplýsinga fylgja Breiðholtskirkja og Fella- og Hólakirkja lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.
Í tengslum við fermingar eru persónuupplýsingar unnar sem liður í lögmætri starfsemi og/eða á grundvelli samþykkis viðkomandi. Þær upplýsingar sem hér er safnað eru jafnframt skráðar í prestsþjónustubók, lögum samkvæmt.

Hér fyrir neðan eru forráðamenn fermingarbarns beiðnir um að taka afstöðu til ýmissa þátta í tengslum við starfið og taka afstöðu til þess hvort og þá að hve miklu leyti myndatökur séu heimilar og hvort kirkjunni sé heimilt að miðla tilteknum upplýsingum um ferminguna, slíkt er eingöngu gert á grundvelli samþykkis. Vakin er athygli á því að slík samþykki eru ekki skilyrði þess að fá að fermast eða taka þátt í fermingarstarfinu að neinu leyti.
Samþykki sem hér eru gefin gilda vegna ferminga sem skráð er í en heimilt er að draga gefið samþykki til baka hvenær sem er, slíkt skal gert með skriflegum hætti. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem heimiluð er á grundvelli samþykkis fram að afturkölluninni, sbr. 3. mgr. 10. gr. persónuverndarlaga.

Við miðum við að fermingarbörn þurfi sjálf að veita samþykki fyrir miðlun umræddra upplýsinga og biðjum við því foreldri að ræða samþykki þetta og fara yfir með barni sínu. Ekki skal haka við atriði hér á eftir sé barnið ósammála foreldri sínu.
Persónuverndarstefnu þjóðkirkjunnar má finna neðst á heimasíðunni www.kirkjan.is.

Miðlun upplýsinga á heimasíður og til fjölmiðla

Í gegnum tíðina hafa fjölmiðlar óskað eftir því við kirkjur landsins að fá upplýsingar um fyrirhugaðar fermingar. Kirkjur hafa orðið við því í þeim tilvikum þar sem foreldri eða barn hefur ekki mótmælt slíkri miðlun. Þær upplýsingar sem veittar eru á grundvelli slíks samþykkis eru dagsetningar fyrirhugaðra fermingarathafna og nöfn og heimilisföng þeirra sem hyggjast fermast á hverjum degi fyrir sig. Sömu upplýsingar hafa jafnframt verið birtar á heimasíðu kirknanna. Tilgangur þessarar miðlunar hefur fyrst og fremst verið til að vekja athygli á starfinu í prestakallinu. Slíkum upplýsingum er eingöngu miðlað liggi fyrir samþykki miðluninni.

Er farið þess á leit að foreldrar taki afstöðu til neðangreindra spurninga í samráði við fermingarbörn.

Er heimilt að birta nafn fermingarbarnsins og fermingardag þess á vefsíðum Breiðholtsprestakalls? *


Er heimilt að birta minnisvers fermingarbarnsins með nafni þess á vefsíðum Breiðholtsprestakalls? *


Er heimilt að miðla nafni fermingarbarnsins og fermingardegi þess til Morgunblaðsins? *


Er heimilt að miðla heimilisfangi fermingarbarnsins með nafni þess og fermingardegi til Morgunblaðsins? *


Myndatökur

Sem liður í kirkjulegu starfi eru gjarnan teknar myndir eða myndbönd úr kirkjustarfinu, en tilgangur slíkrar vinnslu er að vekja athygli á því starfi sem fram fer innan kirkjunnar. Breiðholtsprestakall ber ábyrgð á þeim myndum sem teknar eru á vegum kirknanna og leitast við að sýna sanngirni í allri myndvinnslu.

Myndefni sem unnið er á vegum Breiðholtsprestakalls er birt á heimasíðu kirknanna, heimasíðu Þjóðkirkjunnar www.kirkjan.is og í fréttabréfum. Vakin er athygli á því að kirkjan setur þó ekki myndefni af börnum á samfélagsmiðla. Er farið þess á leit að foreldrar taki afstöðu til neðangreindra spurninga í samráði við fermingarbörn.

Er heimilt að taka myndir af fermingarathöfninni sjálfri? *


Er heimilt að taka myndir af barninu í fermingarkyrtli? *


Má birta myndefnið á vefsíðum Breiðholtsprestakalls? *


Má birta myndefnið á vefsíðum Þjóðkirkjunnar, kirkjan.is? *


Má miðla myndum til fjölmiðla? *


Má birta myndefnið innan veggja Breiðholtsprestakalls? *


Má birta myndefnið í tengslum við auglýsingar Breiðholtsprestakalls, t.d. auglýsingu á fermingunni, æskulýðsstarfi eða öðru kirkjulegu starfi? *